Uppsalahnjúkur fyrir 20 - 30 ára
DAGS
Kl.
16:30 - 20
BROTTFÖR Kl.
16:30
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services

Lýsing
Þessi ferð er hugsuð fyrir fólk í yngri kantinum eða ca 20-30 ára.
Brottför kl. 16:30 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23, safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Ómar Ívarsson
Ekið er að Öngulsstöðum 4 og þaðan að sumarhúsinu Seli. Gengið er upp á Haus þar sem er varða og áfram inn eftir fjallinu um greiðfær holt og stefnt á hnjúkinn. Síðan er gengið upp hrygg fjallsins þar til komið er á hnjúkinn. Útsýni er mikið norður Eyjafjörð.
Vegalengd: 9 km. Gönguhækkun: 870 m.
Þátttaka ókeypis
ATH. Þegar skráningu í ferð er lokið kemur svar í tölvupósti. Þið sem eruð með @gmail.com athugið í ruslpóstinum ef skráning skilar sér ekki til ykkar.
Búnaður
Gönguferðir: 2 skór
Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi
Göngustafir ef vill
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.




